Friday, January 24, 2014

250 MILLJÓNA RISAPOTTUR Í ENSKA BOLTANUM. SÝNDU SNILLDARTAKTA OG TIPPAÐU Á 13 RÉTTA.

Seinustu helgi fékk tippari í ÍR Getraunum 109,  13 rétta í Enska boltanum og því hefur sá stóri skilað sér til okkar tvær helgar í röð.

Við vitum að nokkur húskerfi í 109 eru búin að vera nálægt 13 rétum í seinustu umferðum og vonum við að þau skili sínu núna um helgina til að við hjá 109 náum 13 réttum þriðju helgina í röð!

Potturinn fyrir 13 rétta er risastór á laugardag þó hann nái nú ekki Íslandsmeti og eflaust verða nokkur óvænt úrslit þar sem uppistaða seðils eru leikir í FA CUP og Championship deild sem við köllum sumir 2.deild en leiki og stöðu deilda má sjá hér að neðan.

Enski Boltinn vika_4 2014 stöðutöflur 

Risastórt húskerfi eykur sannarlega  möguleika á vinning, en það þarf hins vegar ekki nema 1 röð á 18kr. til að ná þeim stóra !

Munið bara að merkja við 109 á seðlinum og endilega skrá ykkar lið einnig í Hópaleik hjá Íslenskum Getraunum til að keppa við aðra ÍR-inga á hverjum laugardegi í vetur.


No comments:

Post a Comment